Canon Powershot G12
Í lok apríl fór ég ásamt Brynjari Gunnarssyni til New York að heimsækja félaga okkar, Sigurjón Guðjónsson, sem býr í New Jersey. Báðir erum við ljósmyndarar og allaf á ferðalögum þá fylgja okkur myndavélar og yfirleitt eru það þungar DSLR vélar sem verða fyrir valinu því alltaf hefur maður á bakvið eyrað að eitthvað merkilegt gerist og þá er eins gott að vera með vél með sér. Við töluðum við Nýherja um að fá að prufa tvær vélar frá þeim og kanna hvort að þær gætu tekið við af þungu DSLR vélunum á ferðalagi. Annars vegar Canon Powershot G12 og hins vegar Canon Powershot S95.
Til að kanna samanburð þá fórum við með Canon EOS 1D Mark III, Hasselblad X-pan, Canon Powershot D10, Canon Powershot G12 og Canon Powershot S95.
Fljótlega eftir að við komum út tilkynnti forseti Bandaríkjana, Barack Obama, að sérsveitir innan sjóhers Bandaríkjanna hefðu drepið Osama bin Laden sem var forsprakki hryðjuverkaárásanna á tvíburaturnana í New York 11.september 2001.
Við vorum ekki lengi að hugsa okkur um að við vildum reyna að mynda viðbrögð Bandaríkjamanna við þessum fregnum og fórum því strax morguninn eftir niður á Ground Zero, þar sem tvíburaturnarnir stóðu. Við tókum með okkur Canon EOS 1d Mark III og báðar litlu vélarnar, S95 og G12. Þetta var gott tækifæri til að prufa vélarnar. Við skiptumst á að nota allar þrjár vélarnar og tókum bæði myndir og myndbrot. Við vorum sammála um að vélarnar fóru fram úr væntingum hvað varðar hversu auðveldar þær voru í notkun. Sem atvinnuljósmyndarar gerum við kröfur um að það sé auðvelt að stilla t.d. ljósop, hraða og iso og þær uppfylltu það svo sannarlega.

Powershot G12
Vélin er ekki nógu lítil til að vera með í vasa nema þú sért með stóran vasa þannig að hún flokkast kannski ekki alveg undir vasavél. En hún er mjög létt og kemur með góðri axlaról sem gerir það að verkum að það er gott að ferðast með hana. Hún er eiginlega mitt á milli SLR vélar og vasamyndavélar. Það er mjög gott aðgengi að öllum stillingum á vélinni og mjög gott að nota hana á manual. Við notuðum yfirleitt AV stillinguna (ljósopsforgangur) þar sem ofan á vélinni er stilling sem gerir manni kleyft að yfir- eða undirlýsa um 2 stopp. Vélin er með nýtt kerfi frá Canon sem kallast HS sem stendur fyrir High-Sensitivy sem gerir það að verkum að hún stendur sig betur í aðstæðum sem er lítil birta og á háu iso. Og skilar í leiðinni mjög flottum gæðum.
Það var smá stökk að fara úr DSLR vél yfir í G12 og tókum við aðallega eftir því að við vorum að ramma inn myndirnar öðruvísi heldur en á DSLR vélinni. Það var hins vegar ekki endilega slæmt þar sem við vorum að taka ramma sem við höfðum ekki tekið annars. Sérstaklega af því að skjárinn aftan á myndavélinni er færanlegur þannig að það er einfaldlega hægt að taka myndir upp fyrir haus og troða henni á staði sem maður hefði annars ekki komist með vél. Fólk tekur manni líka öðruvísi þegar maður er með minni vél. Það er ekki eins mikið að hugsa um að þetta sé að fara að birtast í blöðum og hagar sér þar af leiðandi eðlilegra.
Það að geta tekið myndbrot í HD er annar mjög góður fídus sem við nýttum okkur.
Við fengum birta ljósmyndafrásögn í Morgunblaðinu á opnu sem skartaði myndum úr Canon EOS 1d Mark III, Canon Powershot G12 og S95 vélunum. Opnuna má sjá hérna fyrir neðan.

Einnig var birt myndbrot frá okkur á mbl.is sem er hægt að sjá með því að smella hér. Myndbrotin voru tekin á Canon Powershot G12 og S95.
Canon Powershot G12 er vél sem ég sé fyrir mér að geta tekið á ferðalag með mér og skilið DSLR vélina eftir heima.
Að lokum þá eru hérna myndirnar sem voru teknar á G12 vélina í ljósmyndafrásögninni sem birtist í Morgunblaðinu.



Umfjöllun okkar Brynjars um Canon Powershot S95 kemur bráðlega.
-
torfason posted this